Dalalíf
Þór og Danni eru komnir aftur frá Vestmannaeyjum slyppir og snauðir. Kaupmaðurinn á horninu er hættur að skrifa hjá þeim og hungurvofan á næsta leiti. Af óbilandi bjartsýni taka þeir að sér að reka stórbú í Kjósinni meðan bóndinn bregður sér í bændaför til Noregs. Þeir félagar þreytast fljótt á venjulegum bústörfum og auglýsa þess í stað "Dalalífsvikur" fyrir borgarbúa - og þar fer af stað einhver sú alfyndnasta atburðarrás sem sést hefur í íslenskri kvikmynd. Endalaus röð af skemmtilegum persónum kemur við sögu.
- Ár: 1984
- Land: Iceland
- Genre: Comedy
- Stúdíó: Nýtt Líf ehf.
- Lykilorð:
- Leikstjóri: Þráinn Bertelsson
- Leikarar: Eggert Þorleifsson, Karl Ágúst Úlfsson, Sigurður Sigurjónsson, Marentza Poulsen, Guðmundur Ingi Kristjánsson, Jón Ormar Ormsson