
Brúðguminn
Myndin fjallar um háskólakennarann Jón sem reynir að átta sig á tilverunni og sjálfum sér eina bjarta sumarnótt í Flatey á Breiðafirði. Brúðguminn er mynd á léttu nótunum um lífsgleðina og leitina að hamingjunni með ljúfsárum undirtón þó, enda ekkert ljós án skugga. Baltasar Kormákur leikstýrir myndinni, sem byggir á leikverki Antons Tsjekov um Ivanov. Baltasar skrifaði handritið ásamt Ólafi Agli Egilssyni. Kvikmyndin var tekin upp í ágústmánuði á síðasta ári í blíðskaparveðri eins og gerist best á Breiðafirði.
- Ár: 2008
- Land: Denmark, Iceland
- Genre: Drama
- Stúdíó: BlueEyes Productions, Nordisk Film
- Lykilorð: island, iceland, wedding, midsummer
- Leikstjóri: Baltasar Kormákur
- Leikarar: Hilmir Snær Guðnason, Margrét Vilhjálmsdóttir, Laufey Elíasdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Jóhann Sigurðarson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir