
Barbie Jólasaga
Barbie í Jólasögu (Jólasaga Barbie) er hrífandi fjölskyldumynd byggð á klassískri sögu Charles Dickens og er uppfull af upplífgandi jólasöngvum og skemmtilegheitum. Barbie fer með hlutverk hinnar glysgjörnu söngdívu Eden Starling sem er skærasta stjarna leikhúslífsins í London á 19. öld. Í frekju sinni ákveður Eden að allt leikhúsfólkið skuli æfa leikverk á sjálfan jóladag! Ekkert getur fengið Eden af þessari ákvörðun, æskuvinkona hennar og búningahönnuður, Catherine, getur meira að segja ekki fengið hana til að skipta um skoðun. Það kemur því í hlut þriggja óvenjulegra jólaanda að fara með Eden í ævintýralega ferð sem mun opna augu hennar og hjarta fyrir sönnum anda jólanna og þeirri gleði sem felst í því að gefa. Jólasaga Barbie er bráðskemmtileg mynd fyrir alla fjölskylduna sem kemur öllum í sannkallað jólaskap.
- Ár: 2008
- Land: Canada
- Genre: Animation, Family
- Stúdíó: Mattel, Rainmaker Entertainment
- Lykilorð: based on toy, christmas
- Leikstjóri: William Lau
- Leikarar: Kelly Sheridan, Morwenna Banks, Melissa Lyons, Prudence Edwards, Leanne Araya, Kandyse McClure